Iðustraumur
Þegar verið er að tala um iðustreymi í efni er átt við hversu hratt efnið hreyfist, hversu þykkt efnið er og hvernig efnið hegðar sér. Þegar talað er um lagstreymi er átt við að efnið streymir hægt og án ólgu en þegar talað er um iðustreymi fer hraði efnisins yfir ákveðin mörk og hvirflar myndast. Iðustraumar í möttlinum vísa til hreyfinga efnisins þar. Möttulefnið hreyfist mjög hægt vegna varmans sem berst frá kjarnanum um möttulinn og til yfirborðsins með iðustraumum og möttulstrókum. Samspil möttulstróka og iðustrauma gera það að verkum að jarðskorpan er á stöðugri hreyfingu.
Vissir þú að?
Iðustreymi myndast í lagstreymandi vatni þegar hraðinn eykst kringum hindrun.
Vissir þú að?
Iðustreymi myndast í lagstreymandi vatni þegar hraðinn eykst kringum hindrun.