Jarðskorpan
Þynnsta og ysta lag jarðar er jarðskorpan og skiptist hún í meginlandsskorpu og úthafsskorpu. Meðalþykkt jarðskorpunnar á meginlöndunum eru um 30 km en um 10 km á úthafsskorpunni. Þessi munur skýrist af því að á meginlandsskorpunum eru oft stórir fjallgarðar sem gerir þessa fleka töluvert þykkari. Meginlandsskorpan þekur einungis um þriðjung af yfirborði jarðar en úthafsskorpan tvo þriðju hluta af yfirborðinu.